yfirlýsingar breskra og hollenskra ráðherra.
Frú forseti. Það er nú ekki þannig að við höfum aldrei séð þessa menn eða talað við þá. Ætli ég sé ekki búinn að eiga þrjá fundi með Wouter Bos og eiga fjölmörg símtöl og samtöl og fundi með þessum aðilum og ýmsum fleiri sem þetta mál varðar, þessa aðila varðar. Það er mikill misskilningur ef menn halda að það hafi engin samskipti af slíku tagi átt sér stað, mjög mikill misskilningur.
Ég held að það sé verðmætt að eiga þessi ummæli á prenti og þá sérstaklega ummæli hollenska fjármálaráðherrans ef til framtíðar er litið. Ég skil fjármálaráðherra Bretlands þannig að hann sé meira að horfa til framtíðar og þeirrar staðreyndar að auðvitað vilja allir komast út undan og úr því ástandi sem verið hefur, að það sé einhver allsherjarríkispilsfaldakapítalismi sem alltaf gangi í garð þegar kreppir að og einkabankar og einkafyrirtæki geti þá hlaupið á náðir ríkisins og tapið sé borgað af skattborgurunum. Menn þurfa að komast frá því sem gerðist í hruninu þegar ríki stóðu í raun og veru meira og minna ábyrg á bak við og þurftu (Forseti hringir.) með einum eða öðrum hætti að halda þessu kerfi gangandi með stórkostlegum ríkisframlögum, ríkisábyrgðum á öllu saman, eins og á Írlandi, eða með ýmsum öðrum ráðstöfunum. Menn sjá það ekki fyrir sér (Forseti hringir.) sem ástand til frambúðar og ég skil að það sé í því samhengi sem breski fjármálaráðherrann talar.
(Forseti (ÁRJ): Enn biður forseti þingmenn um að virða tímamörk.)