138. löggjafarþing — 35. fundur, 30. nóv. 2009.
úrskurður vegna Vestfjarðavegar.
Frú forseti. Á föstudaginn var var kveðinn upp úrskurður í umhverfisráðuneytinu og er úrskurðurinn svohljóðandi:
Staðfest er ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 27. mars 2009 um að lagning vegar milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði í Reykhólahreppi og Vesturbyggð kunni að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því háð mati á umhverfisáhrifum.