138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[11:39]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek heils hugar undir þetta. Í mínum erlendu samskiptum við aðra þingmenn, sérstaklega þingmenn frá Bretlandi og Hollandi, hef ég orðið vör við mikla vanþekkingu. Það hefði verið sterkt fyrir okkur sem þjóð að sýna viðsemjendum okkar að við stöndum saman í þessu máli. Það er ömurlegt að þetta skuli vera pólitískt deilumál á Alþingi Íslendinga milli stjórnar og stjórnarandstöðu þegar við eigum að standa saman og berjast sameiginlega gegn viðsemjendum okkar sem allir eru sammála um að beiti okkur órétti. Hæstv. fjármálaráðherra er eflaust mjög sammála því, það hefur komið fram í máli hans. Kannski eru stærstu mistökin sem gerð hafa verið í þessu máli af hálfu núverandi og fyrrverandi ríkisstjórna þau að við skulum ekki hafa gert þetta að sameiginlegu baráttumáli allra stjórnmálaflokka (Forseti hringir.) á Íslandi. Það er ekki of seint. Það er það sem við viljum leggja áherslu á.