ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir ágætisræðu sem snerti á mörgum þáttum en það er greinilegt að eftir er að fara yfir marga þætti til viðbótar. Það voru reyndar aðrir þættir sem ég kem kannski að í síðara andsvari mínu en mér er enn heldur misboðið eftir þá uppákomu sem varð hér áðan þegar hæstv. fjármálaráðherra kom í andsvar við hv. þm. Ragnheiði Elínu Árnadóttur, sem hefur borið fram einfalda bón um að reyna að upplýsa málið eins og hægt er. Við höfum sagt það hér að íslensk stjórnvöld, með vinstri stjórnina í broddi fylkingar, hafa ekki staðið vörð um íslenska hagsmuni á öllum stigum málsins, þar með talið á öllum þessum pólitísku fundum sem menn guma sig af að hafa átt, hvort sem það er hæstv. utanríkisráðherra eða fjármálaráðherra — ég held að það hafi verið fátt um fína drætti þegar kemur að forsætisráðherra.
Við viljum gjarnan fá upplýsingar og ekki bara um þessar formlegu fundargerðir. Við vitum vel að það eru teknir minnispunktar og settar niður frásagnir sem þurfa ekkert að vera samþykktar af hálfu gagnaðila heldur eru þetta miklu frekar gögn fyrir ráðuneytið vegna frekari vinnslu málsins o.s.frv.
Ég spyr hv. þingmann hvort það mundi ekki hjálpa til við umræðuna um Icesave að við áttum okkur á því hvernig málum er raunverulega háttað, bæði við hér inni en ekki síður almenningur, sem er nú í stríðum straumum að skrifa undir áskorun Indefence-hópsins um að forsetinn eigi ekki að staðfesta lögin þegar þau verða hugsanlega samþykkt. Telur ekki hv. þingmaður að þetta atriði sé m.a. dæmi um það hversu illa ríkisstjórnin hefur haldið á þessu máli, þ.e. að upplýsa þingmenn og þingheim nægilega mikið um alla þætti málsins? Mun það ekki hjálpa til við framgang málsins, (Forseti hringir.) m.a. greiða fyrir þingstörfum, ef ráðherrar mundu svara (Forseti hringir.) almennilega en ekki vera með þann dónaskap sem þeir hafa verið með?