138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[17:10]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Hvað varðar Sjálfstæðisflokkinn í málinu er afstaða okkar alveg hrein og klár, hún hefur legið fyrir allan tímann. Við höfum sagt: Það á að reyna að leita að samkomulagi. Það eru til skjalfestar heimildir fyrir því. Þegar það samkomulag kom síðan að lokum, því að menn leggja ekki jöfnu, eins og hæstv. fjármálaráðherra hefur gert, það sem kallað er „minnisblað“ sem sent var á milli Hollendinga og Íslendinga og síðan það samkomulag sem er niðurstaða í samningum á milli þjóða. Þegar það samkomulag lá fyrir var afstaða okkar sú að það væri ekki aðgengilegt fyrir okkur Íslendinga og um það voru aðrir alþingismenn okkur sammála.

Síðan hvað hitt varðar, að við séum ekki að semja við okkur sjálf, er það alveg rétt. Auðvitað eiga svona atburðir sér ekki stað í deilum almennt, en aðstæður hafa verið þannig að þær hafa knúið okkur til þessa. Þegar þessir atburðir áttu sér stað sl. haust var fjármálakerfi alls heimsins á barmi hruns og viðbrögð margra, okkar Íslendinga og viðsemjenda okkar, (Forseti hringir.) mörkuðust mjög af því. En nú eru aðrir tímar og við getum staðið (Forseti hringir.) öðruvísi að málum, vonandi.