138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[19:21]
Horfa

Ólöf Nordal (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar til að spyrja hv. þm. Birki Jón Jónsson vegna þess að hann á sæti í efnahags- og skattanefnd — þar var Icesave-málið til umræðu, í sumar fyrst þar sem efnahags- og skattanefnd hafði mjög mikið með það að gera hvernig efnahagslegu fyrirvararnir urðu og svo aftur núna í haust — hvort mikil umræða hafi verið í nefndinni um þann vaxtamun sem Daniel Gros bendir á núna í blöðum. Vegna þess að hv. þingmaður nefndi 200 milljarða hugsanlegan mun sem gæti orðið á milli þeirra vaxta sem Bretar og Hollendingar eru að fjármagna sig á og svo hvernig þeir lána síðan okkur, þar sem þetta eru orðin svona mjög hagfelld vaxtamunaviðskipti af þeirra hálfu, þá spyr ég hv. þingmann að því hvort hann hafi gert sér grein fyrir að það væri hægt að reka Hæstarétt Íslands í 2000 ár fyrir þessar upphæðir. Vegna þess að mér finnst skipta miklu máli að menn hafi í hv. efnahags- og skattanefnd gert sér grein fyrir því hvaða hagsmunir eru þarna undir. Og með hliðsjón af því spyr ég hvort hann telji ástæðu til þess að kalla hv. efnahags- og skattanefnd saman til að fara yfir þessa hluti.

Í þinginu líta menn til þeirrar sérfræðinefndar sér til fulltingis þegar þarf að leysa úr brýnum málum. Í fjárlagagerðinni er það skylda hjá fjárlaganefnd að leita til efnahags- og skattanefndar, henni ber skylda til þess að veita ákveðnar upplýsingar. Ég lít svo á að fjárlaganefnd beri líka skylda til að ræða þá niðurstöðu sem fæst í efnahags- og skattanefnd.

Þá langar mig að spyrja hvort hv. þingmaður, til viðbótar við fyrri spurningu mína, geti deilt þeirri skoðun með mér að þetta mál sé ekki síður mikilvægt en fjárlagafrumvarpið þegar kemur að því hvernig samskiptum eigi að vera háttað á milli nefnda þingsins og þá í þessu tilfelli milli efnahags- og skattanefndar og fjárlaganefndar.