ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég vildi fyrst og fremst beina þeim sjónarmiðum mínum til forseta að ég held að hún hafi enga rannsóknarskyldu í þessu máli. Hæstv. fjármálaráðherra var í viðtali við fjölmiðil úti í bæ og hann hefur að sjálfsögðu fullt málfrelsi til þess. Þessi orð eru tekin úr samhengi eins og svo fjöldamargt sem er notað á Alþingi til uppþots og upphlaupa við hin ýmsu tilefni. Það sem hæstv. fjármálaráðherra var að ræða þarna var staðan í þinginu og þjóðfélaginu í heild sinni, hann var að lýsa ákveðnum vonbrigðum með það að hér gengju mál hægt fyrir sig þegar þau þyrftu að ganga hraðar og vera meiri dampur á málum. Og ef hæstv. ráðherrum sem öðrum borgurum í landinu er ekki frjálst að viðra slík sjónarmið í fjölmiðlum án þess að hér sé rokið til og kallað til hálfgerðrar rannsóknar á ummælunum, stefnir í óefni, af því að málfrelsið er þrátt fyrir allt einhver helgasti réttur allra borgara í þessu landi. Ég held því að hér sé verið að gera afskaplega mikið úr mjög litlu tilefni.