138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[20:30]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, brást til varnar fyrir hæstv. forseta og var það drengilegt. Hins vegar var vörn hans fyrir hæstv. fjármálaráðherra fremur efnisrýr þó að það sé alveg rétt sem hv. þingmaður segir að hér ríkir málfrelsi og hæstv. fjármálaráðherra hefur auðvitað rétt til þess að tjá skoðanir sínar.

Hins vegar verður, eins og hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson sagði, að skoða þessi ummæli í samhengi, þ.e. í samhengi við stöðuna á málum hér í þinginu, fjárlagafrumvarpið og þau mál sem því tengjast. Í því sambandi verð ég enn og aftur að vitna til þess að við í stjórnarandstöðunni höfum boðið það að þessi mál væru tekin á dagskrá, Icesave-umræðan yrði geymd og þessi mál væru tekin á dagskrá. Það er því ekki upp á okkur að klaga að þessi mál eru ekki hér á dagskrá í dag svo dæmi sé tekið.

Hins vegar verður auðvitað líka að horfa á hver ábyrgð fjármálaráðherra hæstv. og ríkisstjórnarinnar í heild (Forseti hringir.) er á því að þessi mál eru svona seint fram komin því að þau komu bara inn í síðustu viku, í lok nóvember, miklu síðar en svona frumvörp hafa komið fram áður.