138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[20:33]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að óska eftir því að hæstv. forseti beiti sér fyrir eða ræði við hæstv. fjármálaráðherra um þessi orð því að okkur er tíðrætt um hlutverk og virðingu Alþingis. Þetta eru vitanlega mjög alvarleg orð, þ.e. að Alþingi sé ekki vaxið því hlutverki að fjalla um og ráðast í þær aðgerðir sem þarf í efnahagslífi landsins. Það þarf að ganga eftir því að hæstv. ráðherra skýri þessi orð sín því að það er ekki hægt að láta þau liggja óútskýrð því að málið er mjög alvarlegt, frú forseti.

Ég hef áhyggjur af þessu viðhorfi hæstv. ráðherra og velti því fyrir mér hvort það sé almennt viðhorf í ríkisstjórninni og hjá framkvæmdarvaldinu að Alþingi sé þess háttar stofnun að Alþingi sé ekki treystandi til þess að leysa þau verk sem því er ætlað.