138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[20:35]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Vegna orða hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar er það alveg rétt að forseta ber engin skylda til að rannsaka þetta mál neitt sérstaklega. En forseti hlýtur að þurfa að beita sér fyrir því að ráðherra upplýsi þegar hann talar um Alþingi með slíkum hætti.

Það er alveg rétt að hæstv. ráðherra segist efast um getu Alþingis en ef ráðherrann efast um getu þingsins þá er það nóg til þess, að mínu viti, frú forseti, að forseti gangi eftir því hvað ráðherrann á við og að hann skýri það.

Síðan er það með ólíkindum, frú forseti, að núna þegar þetta mál er komið út í horn hjá stjórnvöldum þá eru það matsfyrirtækin. Nú eru það matsfyrirtækin sem munu flokka okkur í ruslflokk ef þetta verður ekki samþykkt. Þau hin sömu matsfyrirtæki og áttu að lyfta okkur upp þegar lánin lægju fyrir, þegar væri ljóst að við fengjum lánin. Nú er ljóst að við fáum lánin (Forseti hringir.) en samt er talað þannig, frú forseti, að við erum sett í ruslflokk.