138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:05]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess vegna orða hv. þingmanns í upphafi ræðu sinnar að hv. þingmaður var tekinn af mælendaskrá sl. föstudag í samráði við þingflokksformann hv. þingmanns í samningaviðræðunum um umræðuna þann dag, en talað var um að hv. þingmaður gæti farið á mælendaskrá að nýju þegar hann kæmi til höfuðborgarinnar eftir helgina.