ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni fyrir mjög góða og efnismikla ræðu. Það kom fram í ræðu minni fyrir helgina að svo virtist vera að hæstv. ráðherrar, hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra, væru að leyna þinginu einhverju vegna þess hversu hart þeir keyra þetta mál hér áfram án þess að veita nokkuð meiri upplýsingar, eða að áhugi sé fyrir því hjá þeim ráðherrum að fjárlaganefnd taki málið fyrir aftur í nefnd þrátt fyrir allt það sem bent hefur verið á sem aflaga hefur farið í þessu nýja frumvarpi sem hefur kollvarpað Icesave-samningunum.
Hv. þingmaður fór aðeins inn á það í ræðu sinni um þessi atriði, um þá leynd sem enn þá virðist hvíla yfir og þær hótanir sem þingið virðist vera beitt enn á ný. Því langar mig til að spyrja þingmanninn: Hvað telur hann að liggi undir þeim orðum hæstv. fjármálaráðherra í dag, að það sé eitthvað enn þá að baki Icesave-málinu sem þingið þolir ekki að sjá? Ég minni aftur á að fjárheimildavald landsins liggur hjá Alþingi. Finnst hv. þingmanni það réttlætanlegt að við séum enn, 1. desember er á morgun, að ræða Icesave-frumvarpið? Það kom inn í þingið í vor og við erum enn þá að verða vitni að því að einhver leyndarmál eru þarna á bak við. Hvort heldur þingmaðurinn að ríkisstjórnin sé að hóta þinginu, eða þá hitt að Bretar og Hollendingar séu að hóta ríkisstjórninni?