138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:12]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að benda á þetta. Reyndar er það svo að ég hef haldið mig meira við hina efnahagslegu og tryggingafræðilegu þætti málsins þar sem það er mín sérgrein. Ég hef ekki farið mikið inn á lögfræðilega þáttinn en ég hef bent á að ef ég ætti að reka mál fyrir breskum dómstóli þyrfti ég aldeilis að læra töluvert mikið til viðbótar við það sem ég kann í dag. Ég geri ráð fyrir að flestir, meira að segja lögmenn á Íslandi og löglærðir menn, þyrftu að læra töluvert mikið til að geta rekið mál fyrir breskum dómstóli. Mér finnst Alþingi Íslendinga skauta mjög létt yfir þetta og nefndir þingsins alveg sérstaklega, skauta létt yfir það að þurfa að reka þessi mál — það er búið að færa fyrirvarana sem voru í lögunum frá því í sumar inn í samninginn og þar með gilda ekki lengur um þá íslensk lög. Þeir eru ekki lengur í íslenskum lögum heldur eru þeir orðnir hluti af samningi sem fellur undir bresk lög, undir breska dómstóla. Nú má vel vera að það séu mjög réttlátir og góðir dómstólar en menn þurfa að vita hvernig þeir dæma. Hv. nefnd þarf að fá færustu menn til að fara í gegnum það hvernig það virkar að hafa þessi ákvæði inni í samningnum en ekki lengur í íslenskum lögum frá Alþingi Íslendinga.