138. löggjafarþing — 36. fundur,  2. des. 2009.

störf þingsins.

[10:42]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég hef talsverðar áhyggjur af stöðu iðnfyrirtækjanna íslensku í dag og ég beindi því fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra í síðustu viku varðandi málefni þessara fyrirtækja og þær yfirlýsingar og þær áhyggjur sem forsvarsmenn þessara fyrirtækja hafa beint til okkar þingmanna varðandi það að nú séu skattálögur orðnar það miklar á þessi fyrirtæki að ekkert sé annað fyrirsjáanlegt en uppsagnir á starfsfólki og lækkun launa þeirra sem halda vinnunni.

Hæstv. fjármálaráðherra lýsti því yfir í ræðustól við þá umræðu að skattahækkun á þessi fyrirtæki væri langt frá því að vera það erfiðasta sem hann ætti að verja varðandi skattbreytingarnar miklu sem nú standa yfir. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmenn stjórnarliða séu sammála yfirlýsingum hæstv. fjármálaráðherra og óska eftir því ef einhver þeirra þorir að koma í ræðustólinn og ræða við mig að það verði gert. Það vakti athygli mína að hæstv. fjármálaráðherra var í fjölmiðlum í gær að lýsa því yfir að það sé allt í lagi að hækka skatta vel á þessi fyrirtæki þar sem þau séu í svo góðri samkeppnisstöðu gagnvart innfluttum vörum, að það sé bara allt í lagi að hækka svolítið vel á þessum greinum. Á móti kemur að þessi fyrirtæki eru að skapa aðstæður til að við Íslendingar getum neytt íslenskra vara og spara þar með að við flytjum inn vörur sem er mjög þarft og gott í dag og þess vegna er mikilvægt að þau haldi velli og það á ekki að skattleggja þau þannig að þau fari að brotna niður og eyðileggja þar með grundvöll þessarar starfsemi. Ég vonast til þess að einhverjir séu í salnum úr stjórnarliðinu sem þora að koma og ræða við mig um þetta mál vegna þess að ég hef gríðarlegar áhyggjur af þessum fyrirtækjum og við erum sífellt, við þingmenn, að fá sendar athugasemdir frá forsvarsmönnum þessara fyrirtækja þar sem þeir lýsa þessum áhyggjum. Er þetta atvinnustefna stjórnarliða? Er það? Er það virkilega svo að það eigi að skattleggja íslenskan iðnað þannig að það sé ekkert annað í stöðunni en að segja fólki upp stórum stíl?