138. löggjafarþing — 36. fundur,  2. des. 2009.

störf þingsins.

[10:44]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Mig langar til að beina spurningu til hv. þm. Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur varðandi skuldsetningu þjóðarinnar og langtímaáhrif þess á hagvöxt. Í greinargerð Seðlabankans frá 9. nóvember 2009 til fjárlaganefndar og efnahags- og skattanefndar kemur fram, með leyfi frú forseta:

„Sumir hagfræðingar telja að orsakanna fyrir lágum hagvexti í Japan undanfarna tvo áratugi“ — ég endurtek — „undanfarna tvo áratugi sé að leita a.m.k. að hluta í miklum skuldum hins opinbera.“

Mig langar til að spyrja hv. þingmann sem er hagfræðingur og skrifaði undir 1. minnihlutaálit hv. efnahags- og skattanefndar til hv. fjárlaganefndar, hvernig hún meti það þegar hin gífurlega skuldsetning íslenska ríkisins, bæði ríkisins og þjóðarinnar, þegar við horfum á það hvaða áhrif það muni hafa til langtíma á hagvöxt og hvað það þýðir ef hagvöxtur verður lítill sem enginn kannski í áratug eða tvo, tvo áratugi, hvaða áhrif það hefur á flutninga fólks til útlanda, hvaða áhrif það hefur á getu þjóðarinnar til að standa við skuldsetningu og hvaða áhrif það hefur á það að Íslendingar geti ráðið við þær skuldir sem þjóðin hefur tekið á sig.