vinnubrögð á þingi -- atvinnumál -- skuldsetning og hagvöxtur.
Virðulegi forseti. Ég kem upp til að ræða störf þingsins og vil í upphafi máls míns undir þessum lið ítreka þær skoðanir og þau tilboð um málsmeðferð sem stjórnarandstaðan hefur haft í frammi varðandi þau mál sem bíða okkar. Ég held að það sé mjög mikilvægt að menn vandi sig í því. Síðan langar mig aðeins í ljósi þeirra umræðna sem verið hafa um umræður um Icesave-mál og önnur mál að benda á upplýsingar sem voru á netinu í dag og tengist það fréttamiðlum. Til að setja þetta í samhengi þá virðist vera búið að ræða Icesave í kringum 60 klukkustundir, fjölmiðlafrumvarpið var rætt í milli 90 og 100 klukkustundir, EES-samningurinn í rúmar 100 klukkustundir, u.þ.b. 110, og breyting á Ríkisútvarpinu í nærri 120 klukkustundir. Það er því töluvert eftir enn og það er ástæðulaust að fara á taugum strax, frú forseti, yfir því að það sé mikið rætt í þingsal um þetta stóra mál, þetta svokallaða Icesave-mál, því að það má velta fyrir sér, ef við horfum á fjölmiðlafrumvarpið og Ríkisútvarpið, hvort þetta sé ekki mál sem megi a.m.k. setja í þann klassa ef ekki aðeins ofar varðandi mikilvægi málsins.
Frú forseti. Ég kem upp til að óska eftir því við forseta að tekið verði tillit til þess að það eru margir þingmenn sem ekki hafa enn þá rætt þetta stóra mál og munu vilja ræða það. Því hvet ég frú forseta til að sjá til þess að það verði gefinn sá tími sem þarf í að ræða þetta stór mál en ítreka það að stjórnarandstaðan er enn og aftur tilbúin til að hliðra til málum til að koma öðrum málum að og hægja þá á þessari umræðu á meðan.