fjáraukalög 2009.
Forseti. Þær breytingartillögur sem liggja fyrir eru sama marki brenndar og þær sem við afgreiddum áðan, þ.e. það vantar inn í breytingartillögurnar töluvert háar fjárhæðir sem horfa til gjalda og þar má nefna sérstaklega þá skuldbindingu sem felst í Icesave-málinu og vexti þar af. Fyrir liggja athugasemdir frá Ríkisendurskoðun sem taka í rauninni undir þau sjónarmið sem minni hluti fjárlaganefndar hefur haldið á lofti, að þá færslu beri að taka inn í fjáraukalögin og eru mjög eindregin tilmæli um slíkt. Enn fremur liggja fyrir mjög stórir óvissuþættir sem enn eru ófrágengnir og ríkisstofnunum og ríkisaðilum var ætlað að framfylgja frá því að lögin um bandorminn um jöfnun í ríkisfjármálum voru sett í júní. Ekki er tekið til þess hér með hvaða hætti þessum stofnunum er ætlað að fara með ónýttar fjárheimildir.
Þetta eru tvö dæmi, forseti, sem ég vil nefna sérstaklega sem valda því (Forseti hringir.) að við sitjum hjá við afgreiðslu þeirrar tillögu sem hér liggur fyrir.