138. löggjafarþing — 36. fundur,  2. des. 2009.

tilhögun þingfundar.

[11:13]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti leggur til með vísan til 4. mgr. 10. gr. þingskapa að þingfundur geti staðið lengur en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Atkvæðagreiðslu.) Óskað er eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta.