tilhögun þingfundar.
Virðulegi forseti. Þegar breytingar á þingskapalögum voru ákveðnar á síðasta kjörtímabili hjá síðustu ríkisstjórn var markmiðið m.a. að reyna að fækka kvöldfundum. Flutningsmaður frumvarpsins, þáverandi þingmaður og forseti þingsins, sagði hér í ræðustól að með þessu ætti að liðka fyrir störfum og gera Alþingi að fjölskylduvænni vinnustað. Þau vinnubrögð sem meiri hlutinn hefur sýnt af sér ganga í þveröfuga átt að mínu mati. Það er líka þannig að það liggur ekki fyrir hversu lengi þingfundur á að standa yfir. Ég hefði talið að það væri mjög einfalt að gefa það út nú þegar þannig að þingmenn gætu skipulagt tíma sinn sem mundi teljast eðlilegt á öllum öðrum vinnustöðum.