ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Það er skemmtilegt að heyra í stjórnarliðum sem þó eru farnir að hætta sér inn í salinn og kalla fram í. Það er greinilega eitthvað farið að renna í þeim blóðið. Hér kallaði hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson fram í þegar hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson var í andsvari við mig: Talið þið þá um það, kallaði þingmaðurinn. Við erum að ræða þetta mikilvæga mál, frú forseti. Það eru margir fletir á því og ekki síst hvaða vinnubrögð hafa verið viðhöfð. Það snertir þetta mál vegna þess að við leggjum til að þeim vinnubrögðum verði breytt. Ég hef sagt það áður úr þessum ræðustól að það er ekki of seint að reyna að ná samstöðu um þetta mál. Förum saman og þvælumst fyrir Bretum og Hollendingum. Stöndum saman í lappirnar sem ein þjóð. Það er það sem við viljum gera. En á meðan hæstv. fjármálaráðherra kemur hér og segir að hann geti ekki sagt okkur hvert málið er héðan úr ræðustól og heldur því fram að hann sé búinn að upplýsa stjórnarandstöðuna um það sem máli skiptir, er það ekki rétt, frú forseti. Ef við þurfum að dæma um það, gerum við það út frá því sem við vitum og við vitum að framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur sagt að þetta tvennt tengist ekki. Við höfum heyrt að Norðurlöndin segja: Þetta tengist ekki. Hvað liggur þá á? Af hverju getum við ekki breytt þessum vinnubrögðum? Af hverju getum við ekki farið saman í þennan leiðangur? Ég hef ekki fengið svör við því og þangað til mun ég standa hér og tala fyrir breyttum vinnubrögðum og það snertir Icesave-málið alveg inn að innsta kjarna. Það væri áhugavert ef hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson kæmi hér eitt augnablik og ræddi um þetta mál við okkur. Það væri kannski sómi að því.