ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti Við í stjórnarandstöðunni áttum okkur alveg á því að við erum í stjórnarandstöðu. En hvernig væri að þingmenn meiri hlutans mundu fara að virða vald Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu? Var það ekki ákall þjóðarinnar í haust að Alþingi mundi sýna vald sitt gagnvart framkvæmdarvaldinu? Við skulum hafa eitt í hug: Við höfum allan tímann kallað eftir því að það færi fram raunsætt og kalt mat á Icesave-samningunum. Þegar Icesave-samningarnir voru lagðir fyrir Alþingi síðasta vor var talað um að þetta væru glæsilegir samningar, óséðir. Og hvað var í þessum samningum? Það var búið að veðsetja auðlindir þjóðarinnar. Þá strax sögðu þingmenn Vinstri grænna að það væri nóg talað í þessu máli. Stjórnarandstaðan ætti að leggjast niður og hætta, það þyrfti að keyra þetta mál í gegn. Eftir því sem meira hefur verið sagt í þessu máli þeim mun betur er þjóðin að átta sig á því hversu óhagstæðir þessir samningar eru fyrir íslensku þjóðina.