ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Herra forseti. Það vantaði bara geislabauginn á hæstv. fjármálaráðherra í allri þessari ræðu og það var hálfnöturlegt að heyra þennan samanburð frá því í fyrra. Hann er að jafna saman ræðutíma í hækkun á stimpilgjaldi, hækkun á áfengisgjaldi, miðað við Icesave. Sambærileg mál, ja-há. Þetta er mat hæstv. fjármálaráðherra. Og þegar við höfum hlustað á hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra og þeir segja að allt sé komið á svo dúndurgóðan skrið, er þá verið að jafna aðstæðum í dag miðað við þau tilvik sem við stóðum frammi fyrir fyrir ári síðan?
Ég veit að hæstv. fjármálaráðherra fær óþægileg samtöl frá Hollendingum og Bretum en það er þó eitt sem Hollendingar og Bretar skilja: Þeir átta sig á mikilvægi þingsins. Þeir skilja það og skynja að Alþingi er engin stimpilstofnun fyrir framkvæmdarvaldið. En ég vil hins vegar engu að síður spyrja: Eru einhverjar hótanir sem búa þarna að baki? Hvað hefur verið sagt í þessum samtölum? Er ekki rétt að hæstv. fjármálaráðherra upplýsi algerlega um hvað þessi samtöl snúast? Hefur einhverju verið hótað enn frekar sem hæstv. fjármálaráðherra getur ekki greint frá eða vill ekki greina frá?