138. löggjafarþing — 36. fundur,  2. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[14:46]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Það er vonandi að hæstv. fjármálaráðherra hafi hlýtt á mál hans þannig að —

(Forseti (ÞBack): Einn fund í salnum.)

— hæstv. ráðherra sjái að hér er fólk að hugsa málin en ekki að tala bara einhverja vitleysu út í loftið eins og skilja má á andsvörum sumra hv. stjórnarþingmanna í þessu máli.

Það er rétt sem kom fram hjá hv. þingmanni að heimsendaspárnar hafa verið miklar allt frá því að þetta mál kom fyrst inn í þingið og hér átti að samþykkja samninga sem enginn átti að fá að sjá. Heimsendaspárnar hafa dunið yfir okkur dag frá degi af hálfu ríkisstjórnarflokkanna en ég get ekki séð annað en að við stöndum hér enn. Það síðasta sem kom fram í ræðu hæstv. forsætisráðherra þegar hún fann að sinn tími væri kominn og steig í stól og hélt ræðu var að nú stæði fyrir dyrum frostaveturinn mikli ef við samþykktum ekki þetta mál einn, tveir og þrír.

Ég fagna því að hv. þingmaður er sammála mér um að það verði væntanlega ekki svo mikill frostavetur þrátt fyrir að þetta mál gangi ekki að óskum ríkisstjórnarflokkanna heldur höldum við einfaldlega áfram. Það er mín sannfæring að þegar kröfuhafi á kröfu á skuldara sækir hann þá kröfu meðan hann telur að skuldarinn geti greitt kröfuna og hann leitar þá annarra leiða til þess að ná fram sínum markmiðum ef upphaflega planið gengur ekki upp. Þar sem hv. þm. Höskuldur Þórhallsson er lögfræðimenntaður langar mig að athuga hvort hann sé ekki sammála mér um að Bretar og Hollendingar komi til með að leita annarra leiða til að innheimta það sem þeir telja sig eiga hjá okkur ef við samþykkjum ekki þessa nauðasamninga. Ef svo þarf að fara, koma þeir ekki einfaldlega til með að leita með sínar kröfur fyrir dómstóla? Að mínu mati er sú leið og sú lausn sem ríkisstjórnarflokkarnir bjóða upp á — það er varla hægt að ganga meira til móts við sjónarmið Breta og Hollendinga. Því tel ég að þessi leið sé alls ekki ásættanlegri en hægt væri að fá með dómsniðurstöðu þótt við töpuðum málinu.