ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Við höfum rætt lengi dagskrá þingsins undir liðnum fundarstjórn forseta og okkur hefur undrað þessi forgangsröðun hjá ríkisstjórnarflokkunum að fara ekki í mikilvæg mál eins og ofurskattafrumvörp ríkisstjórnarinnar og annað sem tengist fjárlögunum. Það hefur verið bent á, virðulegi forseti, að svo mikið liggi á Icesave-málunum út af málum sem eru á fárra vitorði en eru þess eðlis að við þurfum að setja algjöran forgang á þetta mál. Ég vil vekja athygli virðulegs forseta á því að nú hefur hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagt að það sé einfaldlega ekki rétt að hæstv. fjármálaráðherra hafi upplýst forustumenn og formenn stjórnarandstöðuflokkanna um einhverja slíka leyndardóma að þeim ætti að vera kunnugt um af hverju þetta er sett í forgang á meðan öll þessi stóru vandamál sem eru uppi í þjóðfélaginu eru látin bíða og heimilin og fyrirtækin (Forseti hringir.) látin gjalda fyrir það.