ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Það er ekki af neinum sérstökum áhuga sem ég kem hingað upp að ræða fundarstjórn forseta. Ég tel mér þó skylt að koma hér öðru hverju og minna hæstv. forseta á að samkvæmt 63. gr. þingskapalaga hefur forseti vald til þess að breyta röð mála á dagskrá. Forseti hefur þá skyldu gagnvart þinginu að láta þingstörfin ganga eðlilega fram og við stöndum frammi fyrir því mikla verkefni að klára afgreiðslu fjárlaga. Það er bæði á valdi forseta og ábyrgð að tryggja að það gerist.
Nú hefur stjórnarandstaðan ítrekað boðið það að taka fyrir mál sem snúa að fjárlögum, afgreiða þau á takmörkuðum, afmörkuðum tíma, þannig að tryggja megi að fjárlögin gangi fram á réttum tíma. Það er í valdi forseta að grípa til þeirra aðgerða sem þingsköp heimila forsetanum að gera og ætlast til þess (Forseti hringir.) að forseti geri til að tryggja að þingið gangi eðlilega fram.