ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég hef mikið velt fyrir mér þessum tryggingarsjóði, innstæðutryggingarsjóði, og athygli mín hefur eins og annarra þingmanna fyrst og fremst beinst að þeim hluta er varðar innstæður í sjóðnum. Sjóðurinn á hins vegar ekki bara að ábyrgjast innstæður heldur líka verðbréf og reiðufé á vegum fjárfesta hjá viðkomandi fjármálastofnunum. Í greininni sem ég nefndi hér áðan nefndu menn áhyggjur sínar af því hvað gæti gerst vegna þeirrar 100% ábyrgðar sem ríkisvaldið lýsti yfir gagnvart innstæðunum, þar sem þær eru færðar í forgangskröfur. Veit hv. þm. Ásbjörn Óttarsson hvort það hafi verið skoðað hvernig réttarstaða þeirra fjárfesta sem voru með fjármuni hjá þessum bönkum er gagnvart tryggingarsjóðnum og hvaða áhrif það hefði á réttarstöðu ríkisins ef í ljós kæmi að ríkið mismunaði á einhvern máta þeim sem eiga kröfu á tryggingarsjóðinn?
Ég veit að þetta er tiltölulega flókin spurning og erfitt að svara henni á tveimur mínútum, en þetta eru ákveðnar vangaveltur sem maður hefur verið með í ljósi þess að ef við getum einhvern tímann frestað þessari umræðu um tryggingarsjóðinn erum við að fara að ræða nýja löggjöf. Og ef forseti skoðaði nú að breyta dagskrá gætum við tekið ýmsar skattatillögur fyrir líka.
En þetta er eitthvað sem ég hef aðeins verið að velta fyrir mér og endurspeglast í því að alltaf eru að koma upp nýir og nýir vinklar í þessu máli, við teljum okkur vera komin með nokkuð skýra mynd af því hvernig staðan er og síðan kemur eitthvað nýtt upp. Þannig að spurningin er hvort þetta hafi eitthvað verið rætt (Forseti hringir.) í fjárlaganefnd.