ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Það er hárrétt sem hér hefur komið fram, þeir fyrirvarar sem gerðir voru í haust í þinginu eru að mestu að engu orðnir, hafa í það minnsta verið vatnaðir þannig út að það er ekki hald í þeim og alls ekki það sama og lagt var upp með í ágúst. Það setur málið í áhugavert ljós hvað varðar aðkomu forseta Íslands að málinu.
Ég vil gjarnan fá að heyra skoðanir hv. þingmanns á því, úr því að forsetaembættið telur sig hafa þessa heimild, hvort ekki séu þá einmitt ríkari rök fyrir því að gefa þjóðinni tækifæri til að kjósa um þetta mál úr því sem komið er, þ.e. úr því að augljóslega eru mjög deildar meiningar um það. Jafnvel má halda því fram að það sé gjá á milli þings og þjóðar og sem mér finnst kannski mikilvægast í því ljósinu að fjölmiðlafrumvarpið var þó þannig og þess eðlis að því mátti breyta, t.d. um leið og búið var að kjósa til nýs þings og kominn nýr meiri hluti. Ef Alþingi snerist hugur var hægt að breyta þeim lögum, með öðrum orðum höfðum við Íslendingar fullt forræði yfir málinu.
Verði það frumvarp sem hér er lagt fyrir að lögum er enginn möguleiki að vinna okkur út úr því. Þá erum við búin að gangast undir þessa ríkisábyrgð, meira að segja á þeim forsendum að við eigum ekki að borga, en þá göngumst við samt sem áður undir það í skugga valdbeitingarhótana að við ætlum að greiða gríðarlega miklar fjárhæðir til bæði Breta og Hollendinga sem ekkert væru þá annað en skattgreiðslur okkar Íslendinga til þessara ríkja.
Úr því að svona fór með fjölmiðlafrumvarpið og þá afstöðu sem forsetaembættið hefur til þessa máls, getur ekki hv. þingmaður verið mér sammála um að þar með sé komið aukið vægi á það að forsetaembættið skoði sinn gang? Tek ég þó undir með hv. þingmanni að ég er þeirrar skoðunar (Forseti hringir.) að forseti hafi ekki þetta vald.