138. löggjafarþing — 36. fundur,  2. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:04]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Þór Saari) (Hr):

Frú forseti. Ég kem upp til að ræða nokkra punkta sem ég hef ekki komist yfir fyrr í málflutningi mínum. Mig langar hins vegar að byrja á að nefna það við hv. þm. Sigmund Erni Rúnarsson að við höfum í tvígang í dag boðist til að taka öll þau mál inn í þingið sem ríkisstjórnin óskar eftir ef Icesave-umræðunni verður frestað á meðan en þeim tilboðum hefur verið hafnað. Það er mér ekki kappsmál að tefja fjárlög eða skattamál ríkisstjórnarinnar. Þetta eru allt saman mjög brýn mál sem þarf að afgreiða og þó að ég sé kannski ekki sammála þeim öllum mun ég ekki standa í vegi fyrir því eða tefja framgang þeirra á þinginu, það er alveg á hreinu.

Ég kom ekki með þetta mál inn í þingið. Þetta mál var afgreitt sem lög frá Alþingi í sumar, einhver merkilegasta lagasetning sem þetta þing hefur nokkurn tíma afgreitt. Þeirri lagasetningu var alfarið klúðrað af hálfu framkvæmdarvaldsins í framhaldinu sem vogaði sér að koma aftur inn með málið og leggja til að fyrirvararnir í því yrðu slitnir úr sambandi og málið hugsanlega gert mjög varasamt fyrir efnahag þjóðarinnar. Það er ekki nema eðlilegt að við þurfum að ræða það til hlítar ef slíkt er gert og það segir mér enginn að hæstv. ríkisstjórn hafi búist við því að málið yrði afgreitt öðruvísi en í ágreiningi. Málið var tekið í ágreiningi út úr efnahags- og skattanefnd og tekið í ágreiningi út úr fjárlaganefnd án þess að fá efnislega umfjöllun. Bent var á það í báðum nefndunum að málið mundi í staðinn fá umræðu í þingsal. Það er ekki eins og ekki hafi komið fram ný efnisatriði í málinu síðan, ekki er lengra síðan en í gær að gert var hlé á umræðu um málið og lögspekingar fengnir fyrir fjárlaganefnd til að velta því upp fyrir nefndinni hvort hugsanlega væri verið að fara á svig við stjórnarskrána að einhverju leyti. Engin niðurstaða kom út úr þeim fundi önnur en sú að lögfræðingarnir skiptust að einhverju leyti í lið í álitum sínum, einn var mest á móti, annar svolítið minna á móti og tveir voru þeirrar skoðunar að þetta bryti ekki í bága við stjórnarskrána. Því var hins vegar hafnað að bjóða upp á skriflegar álitsgerðir um málið. — Nú sé ég að hæstv. utanríkisráðherra brosir fallega til mín. Ég veit að honum þykir vænt um mig og það er gott að fá að vita það svona beint fyrir framan sig. (Utanrrh.: Það er staðfest.) Það er staðfest, þakka þér fyrir það.

Í framhaldi af þessum fundi lögspekinganna í gær kom önnur grein í Morgunblaðinu í dag þar sem það er nánast lagt niður að hér sé verið að fara á svig við stjórnarskrána. Mergur málsins er sú staðreynd, sem ég hef alltaf bent á, að hér verið að biðja um ríkisábyrgð sem er ótakmörkuð í tíma og ótakmörkuð í umfangi. Það er bara ein af staðreyndum málsins og að halda öðru fram er einfaldlega rangt. Enginn lögspekinganna í gær gat bent á það hvenær ríkisábyrgðinni lyki eða hver hámarksupphæðin yrði sem greiða þyrfti. Af þeim ástæðum töldu þeir og sumir telja enn að hér sé verið að setja lög um eitthvað sem brýtur í bága við stjórnarskrána. Að mínu viti er það ekki ásættanleg niðurstaða. Það er heldur ekki rökræn niðurstaða miðað við gögn málsins sem hafa komið fram. Gögn málsins um það t.d. hvernig á að fara að því að greiða skuldir ríkissjóðs þegar þetta bætist ofan á eru þess eðlis að þar stendur ekki steinn yfir steini. Gögn Seðlabankans halda ekki vatni frekar en hriplekur strigi. Ég hef óskað eftir því að reynt verði að fá rökræna niðurstöðu í þetta mál. Ég hef óskað eftir því á fundum með forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar í tvígang í dag að málið verði tekið úr þeim farvegi sem það er í núna. Það er í sjálfheldu í þinginu, það er einfaldlega staðreynd. Margra hluta vegna er það í sjálfheldu í þinginu og því verður kannski ekki breytt svo auðveldlega. Það næst ekki samkomulag um framhaldið.

Það eru þrjár leiðir til að mínu viti til að ná málinu úr þessari sjálfheldu og sú fyrsta er sú sem hefur verið rædd svolítið oft á milli okkar og (Gripið fram í.) formanna stjórnarandstöðunnar. Það er sú leið að málinu verði frestað og önnur brýnni mál tekin inn í staðinn. Bretar og Hollendingar verða kannski ósáttir við það að Alþingi þurfi að fjalla betur um málið og í lengri tíma en það verður þá bara að hafa það. Þetta er Alþingi Íslendinga. (Gripið fram í.) Önnur leiðin er sú að ríkisstjórnin taki sig saman og lýsi því einfaldlega yfir að málið sé eins og áður sagði í sjálfheldu í þinginu. Það fær ekki þinglega afgreiðslu, þingið er bara það mikið á móti því að það kemst ekki í gegn. Hvað er þá hægt að gera? Ríkisstjórnin getur kippt málinu til baka og lýst því yfir ... (Gripið fram í.)

(Forseti (UBK): Forseti vill biðja hv. þingmenn að eiga ekki samræður við ræðumenn sem standa í ræðustól Alþingis.)

Ríkisstjórnin getur lýst því yfir að það sé ekki hægt að koma þessu máli í gegnum þingið, hvort sem það er meiri hluti fyrir því eða ekki, og óskað þess við utanaðkomandi aðila að þetta sé orðið þess eðlis að hér sé um milliríkjadeilu að ræða og það verði að leysa hana á pólitískum grundvelli eins og slíkar deilur með aðkomu sáttagerðarmanna eða landa eða einhverra til að reyna að finna niðurstöðu því að þetta mál er óásættanlegt fyrir Íslendinga. Það hangir of mikið á spýtunni til að ég geti samþykkt það og fjöldinn allur af öðrum þingmönnum, og það væri kannski æskilegasta leiðin að reyna að leysa úr málinu á sanngjarnan hátt fyrir einhvers konar alþjóðlegum gerðardómi eða sáttagjörðarvettvangi.

Þriðja leiðin út úr þessu er svo hins vegar sú sem mér kannski hugnast, og þó að ég hafi í umræðum mínum um þjóðaratkvæðagreiðslur almennt ekki talið að mál sem snúast um fjármál ríkissjóðs eða þjóðhagslegar byrðar þjóðarbúsins sé hægt að bera beint undir þjóðaratkvæði, þá er þetta mál heldur ekki beinlínis þess eðlis. Hér er um áratugaskuldbindingu að ræða, skuldbindingu sem sennilega meginþorri þjóðarinnar telur ekki á sinni könnu að borga. Ég er alveg sammála því að það er ekki mitt að borga þetta. Þetta eru ekki skuldir sem ég efndi til. Ég held að það væri ráð, ef hægt væri að koma því við, að ríkisstjórnin leitaði leiða, hverjar svo sem þær yrðu, til að taka þetta mál út úr þinginu og vísa því til atkvæðis hjá þjóðinni. Þar kæmi þá niðurstaða sem væri óvefengjanleg og ekki hægt að gera neitt meira við en vísa henni til Breta og Hollendinga og fara svo með málið einhver veginn áfram þaðan.

Þetta eru leiðir sem hægt væri að fara og allar þrjár eru miklu betri en að halda áfram þessu pexi. Þótt fram komi ný atriði og fjöldinn allur af þingmönnum sé ekki búinn að tala sig tóman um málið enn þá, er samt engum blöðum um það að fletta að ef æskilegri niðurstöður kæmu fram í málið mundu þingmenn væntanlega hugsa sig um og jafnvel draga sig af mælendaskránni. Það eru til leiðir fyrir ríkisstjórnina að fara í þessu máli ef hún kýs að gera svo. Ég óska þess að hæstv. ríkisstjórn taki þessar athugasemdir til greina og reyni að gera eitthvað í málinu.

Niðurstaðan úr þessu blessaða máli öllu saman verður náttúrlega sú — nú er hæstv. heilbrigðisráðherra farin úr salnum, ég hefði óskað þess að hún væri hér áfram, m.a. er verið að skera hér niður í heilbrigðiskerfinu og verður gert á næstu árum. Það verður skorið niður í menntamálum og verður gert á næstu árum. Velferðarkerfið verður skorið niður í ár og á næstu árum. Þegar er byrjað að krukka í fæðingarorlofið. Landspítalinn er á ystu nöf hvað varðar starfsemi. Þar þekki ég vel til og hef gert í hálfan annan áratug. Mér er vel kunnugt um að þar er hópur lækna, hjúkrunarfræðinga og sérfræðinga sem eru annaðhvort búnir að segja upp eða ætla að segja upp vegna álags, vegna lélegs starfsanda, vegna mikillar óvissu, vegna óviðunandi vinnuumhverfis, faglega. Þetta fólk á ekki í neinum vandræðum með að finna sér vinnu annars staðar og þó að ekki sé kannski um stórfelldan fólksflótta að ræða er um að ræða brottför fólks sem skiptir mjög miklu máli fyrir framtíð og heilbrigði þjóðarinnar og verður vont að missa það úr landi. Það mun taka mjög langan tíma að vinna upp þá þekkingu sem tapast og þá færni, þannig að þetta er gríðarlega alvarlegt mál. Þetta er bara ein af afleiðingunum sem munu fylgja því að samþykkja þessar skuldir til viðbótar þeim sem núna hvíla á ríkissjóði. Meðal annars af þeim sökum sé ég mér ekki fært að styðja þetta mál og þegar ég kemst aftur að á mælendaskrá mun ég reyna að klára athugasemdalista minn við málið.