ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Í þorskastríðunum nýttu Íslendingar afl sitt. Einn af forustumönnum Íslands, Bjarni heitinn Benediktsson, var í fararbroddi í þeim efnum að ná tengingum í gegnum NATO og í gegnum Bandaríkjastjórn til að brjóta niður vilja og yfirgang Breta gagnvart Íslendingum. Þetta voru lyklarnir tveir í því að við náðum eins miklum árangri og raun bar vitni í þeim efnum. Bjarni heitinn Benediktsson stýrði þeirri vinnu um langt árabil.
Hafa núverandi ríkisstjórn og stjórnarsinnar reynt að læra eitthvað af því? Ekki spor, þeir ganga berfættir og bíða eftir Evrópujullunni, það er svo hlýtt dekkið á henni. Þetta er alveg skelfilegt, virðulegu þingmenn.