ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Illuga Gunnarssyni svarið. Það er greinilegt að þetta vefst fyrir fleirum en mér. Ég er í sjálfu sér ekki með það á hreinu hvernig heppilegast væri að leysa úr þessu máli. Deilt er um það, heldur betur rækilega, hvort þetta mál eigi að fara hér í gegn eða ekki, menn greinir mjög á um það. Ein meginástæðan fyrir því að þetta tekur svona langan tíma hér í þinginu er sú að málið fékk ekki efnislega umfjöllun í efnahags- og skattanefnd þar sem ég á sæti. Sú nefnd gat ekki skilað af sér meirihlutaáliti í því heldur komu fjögur minnihlutaálit fram og þrjú af fjórum minnihlutaálitunum voru andstæð málinu. Málið fékk heldur ekki efnislega umfjöllun í fjárlaganefnd, sem kom mér á óvart, en það er greinilegt að verið var að þrýsta harkalega á formann nefndarinnar með málið.
Málið virðist því vera í einhvers konar sjálfheldu hér í þinginu, alla vega í bili. Vitandi það höfum við lagt þá tillögu fram við formenn ríkisstjórnarinnar, hæstv. forsætis- og fjármálaráðherra, að úr því að málið sé í þessari stöðu verði það einfaldlega dregið til baka. Við höfum lagt til að því verði lýst yfir að málið fái ekki pólitískan framgang á Íslandi og leita verði annarra leiða við að leysa úr þessari deilu við Hollendinga og Breta, annaðhvort með því að vísa til laganna sem þingið setti í sumar eða þá að fá aðkomu þriðja aðila sem mundi leysa málið á einhvers konar grundvelli hefðbundinnar milliríkjadeilu þar sem reynt yrði að komast að niðurstöðu.
Þetta mál er stórskaðlegt fyrir íslenskan almenning, íslenskt efnahagslíf og íslenskt samfélag inn í framtíðina og bætist ofan á öll þau stórskaðlegu mál sem fyrir eru. Mig langar að vita hvað hv. þingmanni þykir um þá tillögu að (Forseti hringir.) reyna að leita aðstoðar utan frá til að leysa þetta mál milli þessara ríkja.