138. löggjafarþing — 37. fundur,  3. des. 2009.

aukning aflaheimilda.

[10:57]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Frú forseti. Ég ákvað að vera svo almennileg að hvíla hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra eftir næturbröltið þar sem þau væntanlega hafa legið límd yfir sjónvarpsskerminum til að fylgjast með umræðunni í nótt. Ég vonast til að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sé kannski aðeins betur hvíldur og tilbúinn til að takast á við þetta stóra verkefni, hvernig við eigum að afla okkur gjaldeyristekna til að borga allar þessar skuldir, sérstaklega ef það reynist síðan rétt eins og kom fram í umræðunni að skuldin sé hugsanlega jafnvel hærri en þegar hefur verið áætlað. (Gripið fram í: En skötuselurinn) Já, það er kallað hér fram í varðandi skötuselinn. Það var þannig að hæstv. ráðherra tók ákvörðun um að tvöfalda nærri því aflaheimildir á skötusel umfram ráðleggingar. Ég var að velta fyrir mér í framhaldi af frétt í RÚV í gær, hvort ráðherrann sé að íhuga að gera það sama fyrir fleiri tegundir. Síldarkvótinn er að klárast og Hafrannsóknastofnun gaf út endanlegt heildaraflamark fyrir íslensku sumargotssíldina í byrjun nóvember. Þá höfðu þeir gert aftur mælingar og það kom í ljós að stofninn var ívið stærri en þeir höfðu áður áætlað eða um 465 þús. tonn en áður töldu þeir að hann væri um 370 þús. tonn. Þeir sögðu líka að þeir teldu að sýkingarhlutfallið í síldinni væri einhvers staðar í kringum 40% og þetta hafa sjómenn og fiskvinnslufyrirtæki staðfest að sýkingarhlutfall virðist vera 30–40%. Hins vegar virðist sýkingin í flökum vera minni en áætlað er og nánast allur afli er að fara til vinnslu og því eru þetta mikil verðmæti sem verið er að búa þarna til.

Ég hefði mikinn áhuga á að heyra frá hæstv. ráðherra hvort hann ætli að taka það skref að auka við kvótann, þannig að við getum kannski farið að ná okkur í einhverjar tekjur til að borga alla þessa reikninga.