tilhögun þingfundar.
Frú forseti. Það er sjálfsagt mál að styðja þessa tillögu þar sem stjórnarandstaðan er lögst í málþóf eins og enginn sé morgundagurinn og hefur í krafti hinna nýju þingskapa tekið meiri hlutann af þinginu í gíslingu þessa málþófs og þá er sjálfsagt, frú forseti, og ég legg það formlega til að forseti haldi þingfund sleitulaust þangað til mælendaskrá er tæmd. (Gripið fram í.) Það eru ekki nefndarfundir í fyrramálið þannig að það er ekkert sem hastar á að fundurinn sé klipptur í sundur. Það er sjálfsagt mál, frú forseti, að stjórnarandstöðunni sé gefinn kostur á því að ljúka málþófi sínu með því að standa fyrir þingfundi þangað til mælendaskrá er tæmd. Það er óþolandi að dag eftir dag sé þinginu, lýðræðislega kjörnum meiri hluta, haldið í gíslingu málþófs með rándýrum og miklum kostnaði fyrir þjóðarbúið og þess vegna legg ég tel að þingfundur standi (Gripið fram í.) sleitulaust þangað til mælendaskrá er tæmd og málþófi lokið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)