138. löggjafarþing — 37. fundur,  3. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[11:35]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Miðað við þær stuttu ræður sem stjórnarliðar hafa komið í undir liðnum um fundarstjórn forseta, tel ég að það hljóti að hafa verið send út einhver orðabók, hvort sem það var frá fjölmiðlafulltrúa forsætisráðuneytisins eða ekki, því að það virðist vera að menn noti sömu orðin aftur og aftur. Nýjasta orðið er „málþófsflokkarnir“, það er talað um „excel-skjalið“. Það er reynsla mín undanfarið að framsóknarmenn hafa kannski ekki látið neitt sérstaklega vel að stjórn. Ég hvet til þess að við berum saman hvernig mælendaskráin hefur verið og þetta blessaða excel-skjal og sjá hvort það hafi staðið í samræmi við það sem menn ætla.

Svo væri kannski ástæða til þess, frú forseti, að velta fyrir sér hvernig stendur á því að skjöl héðan úr Alþingi eru farin að komast í hendur fjölmiðla. Það er svo sem kannski ekki nýtt, alla vega ekki hjá öðrum stjórnarflokknum. En ég vil hins vegar hvetja forseta til að skoða það sem við leggjum til varðandi endurskoðun á dagskrá þingsins.