ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Hæstv. forseti. Nú hafa mörg orð verið látin falla í þessari umræðu varðandi fundarstjórn forseta og m.a. að ekki megi anda á stjórnarandstöðuna. Ég er algjörlega ósammála því. Það má sannarlega gera það. Það er ekki rétt að við stjórnarandstæðingar höfum verið að kveinka okkur undan löngum fundum, alls ekki. Við teljum rétt að það sé farið að stjórnarskrá, það sé farið eftir þingsköpum Alþingis. Ég tel rétt, frú forseti, þar sem menn virðast vera að missa aðeins tökin á því hvernig þeir haga sér í þingsal, hæstv. ráðherrar og nokkrir hv. þingmenn, að forsætisnefnd verði kölluð saman nú þegar til að reyna að setja saman einhver drög að því hvernig við ætlum að haga þessum fundi. Það er nú mjög frjálsleg túlkun á því um hvað má tala t.d. undir þessum lið. Ég upplifði það í nótt að hv. formaður fjárlaganefndar mátti fara í efnislega ræðu undir þessum lið og var það hálfgerð stefnubreyting af hálfu forseta. Ég tel rétt að við öndum aðeins með nefinu, höldum stuttan fund í forsætisnefnd og förum aðeins yfir málin, hvernig við ætlum að ná aga í herbúðum Alþingis.