138. löggjafarþing — 37. fundur,  3. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[12:15]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Virðulegi forseti. Okkur í minni hlutanum er brigslað um að við séum í málþófi. Mér finnst ekkert skammarlegt við að fara í málþóf um mál sem mér finnst jafnmikilvægt til að tryggja að allar upplýsingar komi fram. Ég er a.m.k. búin að upplifa að enn vantar mikið upp á að almenningur sé upplýstur um hvað það þýðir nákvæmlega að samþykkja Icesave í þeirri mynd sem það er í núna. Eins og ítrekað hefur komið fram var ofið snilldarlegt öryggisnet um frumvarpið sem varð að lögum í sumar sem tryggði að við mundum ekki greiða vexti umfram getu, umfram hlutfall af vergri landsframleiðslu og aukningu í henni. Þegar það er tekið í burtu er þetta svokallaða sjö ára skjól sem hæstv. ríkisstjórn talar gjarnan um og sér í lagi hæstv. fjármálaráðherra að engu orðið því að við munum í raun og veru þurfa að byrja að greiða vexti af þessu, vexti sem við þurfum að greiða árlega og taka til tekjuskatts um 79.000 Íslendinga sem fer í að greiða í þessu sjö ára skjóli vextina, ekkert nema vextina af Icesave.

Mér finnst ég ekki bara geta setið hjá og ekki gert neitt til að reyna að hindra að þetta gerist. Ég verð að upplýsa fólk. Mér finnst þetta meiri klyfjar sem á að leggja á þjóðina en ég held að hún geti staðið undir. Þetta eru ekki einu vextirnir sem við þurfum að greiða af erlendum lánum og það reiknast svo út að það sé tekjuskattur um 150.000 Íslendinga sem á árlega að fara í að greiða vexti af erlendum lánum. Ég hef ítrekað beðið meiri hlutann, hæstv. ríkisstjórn og sér í lagi hæstv. fjármálaráðherra sem væntanlega ætti að hafa mótaðar hugmyndir um hvernig eigi að taka á þessu máli. Ég hef ítrekað spurt hæstv. fjármálaráðherra: Munu ekki grunnstoðir samfélagsins okkar bresta ef svona gríðarlega hátt hlutfall af tekjuskatti landsmanna fer í að greiða vexti af erlendum lánum? Erum við þá í raun og veru ekki að komast á svipaðan stað og þróunarlönd? Við höfum gjarnan litið á okkur sem æðri þeim.

Ég er búin að reyna að afla mér upplýsinga um Icesave. Allt frá fyrsta degi þegar þáverandi formaður samninganefndarinnar kynnti mér Icesave bað ég hann um, um leið og ég vissi að það ætti að fara að fjalla um Icesave, að tryggja að forustumenn þingflokka eða utanríkismálanefnd fengju aðgang að þessari svokölluðu lánabók Landsbankans sem átti að standa á bak við tryggingu fyrir því að þessar gríðarlegu skuldbindingar mundu ekki enda á öxlum þjóðarinnar. Ég er í þannig stöðu sem þingmaður að ég fæ ekki aðgang að lánabók Landsbankans sem á að vera þessi trygging þjóðarinnar. Staðan er svo slæm að meira að segja hæstv. fjármálaráðherra hefur ekki fengið aðgang að þeim upplýsingum sem skilanefndir bankanna geyma. Á sama tíma á þetta að vera öryggisnet vegna yfirstandandi skuldbindinga varðandi Icesave. Enginn, ekki nokkur maður — nema þeir sem sitja í skilanefnd Landsbankans — hefur séð þessa huldubók. Þrátt fyrir að ég sitji t.d. í nefnd sem er bundin trúnaði um viðkvæmar upplýsingar, þ.e. utanríkismálanefnd, er varðar þjóðaröryggi hefur engum úr nefndinni auðnast að fá heimild til að sjá huldubók Landsbankans, ekki einu sinni þeim sem fóru utan. Ekki einu sinni Svavar Gestsson og ekki einu sinni Indriði H. Þorláksson hafa fengið að sjá þessa bók þrátt fyrir að þurfa að semja fyrir hönd þjóðarinnar um skuldbindingar Landsbankans. Okkur þingmönnum er gert að trúa því að þetta sé ekki aðeins huldubók, heldur jafnframt töfrabók, þessi blessaða lánabók, því að endurheimturnar eiga að vera töfrum líkastar og stundum er jafnvel talað um að það verði 100% heimtur.

Allir hagfræðingar sem ég hef talað við og þekkja til gjaldþrota vita að það væri töfrum líkast ef slíkar heimtur yrðu. Til dæmis náði Lehman Brothers þrotabúið sem hrundi á áþekkum tíma ekki nema 20–30% sem þykir bara mjög gott í þessu árferði heimsbyggðarinnar varðandi fjármál.

Mér er býsna hugleikið að enn hafa ráðamenn þjóðarinnar ekki getað komið með þannig útreikninga eða yfirlýsingar sem sannfæra mig um að það sé réttlætanlegt að gera ekki allt sem í mínu valdi stendur til að stöðva þetta. Það hefur enginn útskýrt fyrir mér hvernig við eigum að geta borið þessar klyfjar. Ég óska einlæglega eftir því að hæstv. ráðherrar sem eru í húsinu svari þessari spurningu: Hvernig eiga grunnstoðir samfélagsins að standa undir þeim klyfjum að tekjuskattur 150.000 Íslendinga fari í að greiða vexti af erlendum lánum? Hvernig er þetta hægt án þess að allt bresti hér?

Mikið er búið að tala um þær tölur sem hafa komið frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og þær yfirlýsingar þeirra að við þyldum ekki meira en 240% skuldaþol. Nú er það komið upp í 310% og þeir segja að það sé allt í góðu. Ég á fund með þeim klukkan eitt og ég ætla einmitt að spyrja þá nákvæmlega út í þetta. Ég á þá örugglega eftir að þurfa að koma aftur í ræðustól til að greina frá því sem kemur fram á þeim fundi.

Ég tek líka undir hugmyndir um að senda út samninganefnd til Bretlands og Hollands. Ég hef reyndar alveg frá því í sumar ítrekað beðið um að slík nefnd yrði sett á laggirnar, yrði skipuð fimm þingmönnum og við mundum þá að sjálfsögðu fara út sem samheldinn hópur til að kynna stöðu landsins og leitast við að fá betri samninga. Ég held að það væri bæði gagnlegt að við tækjum þetta upp úr þessum embættismannahjólförum og færðum þetta yfir á þær slóðir sem þetta er, yfir í pólitísku orðræðuna. Jafnframt skora ég á hina ágætu hæstv. ríkisstjórn og þá sem hafa forræði um það hverjir fara út til að semja fyrir okkar hönd að fá aðila eins og Buchheit sem hafa mikla reynslu af því að semja nákvæmlega á þessu sviði til að leiða þetta. Það var afþakkað að fá aðstoð hans á sínum tíma út af því að það þótti hreinlega of dýrt, frú forseti. Hvað ætli það hafi kostað okkur að hafna slíkri sérfræðiþekkingu og hafa í raun og veru alvörufólk sem hefur reynslu af því að semja við nýlenduþjóðir, sem hefur reynslu af því að semja fyrir þjóðir sem kannski standa höllum fæti og hafa ekki þann styrk? Við höfum ekki mikinn styrk eða trúverðugleika og við hreinlega þurfum á að halda allri þeirri aðstoð sem okkur býðst, við þurfum að þiggja hana.

Í ræðum mínum hef ég ítrekað kallað eftir samstarfi og það hryggir mig að einn af hæstv. forsetum þingsins skuli hrópa að mér að ég sé orðin klappstýra Davíðs Oddssonar út af því að ég stend hérna og berst fyrir því að ekki séu settar slíkar klyfjar á þjóðina að ég geti ekki horft í augun á börnunum mínum og sagt þeim að ég hafi ekki gert allt sem ég gat. Þó að hann hafi ekki sagt það í ræðustól heldur hrópað það hérna í salnum vil ég bara bera af mér að ég megi ekki standa á sannfæringu minni án þess að þurfa að ganga í einhverja aðra flokka. (Gripið fram í: Hver sagði þetta?) Það var, best að hafa nafnið rétt, Árni Þór Sigurðsson. Ég skora á hann frekar en að vera með svona aðdróttanir að fólk bara vinni saman. Það er kominn tími til þess.