138. löggjafarþing — 37. fundur,  3. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[12:25]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir málefnalega og innihaldsmikla ræðu. Ég harma að hún telji sig hafa orðið fyrir aðdróttunum af mjög leiðinlegu tagi í þingsalnum í morgun og ég vonast til að við náum einhverjum betri brag á umræðuna í dag. Ég vil upplýsa hv. þingmann um að það hefur verið boðað til fundar í forsætisnefnd líkt og ég óskaði eftir undir liðnum um fundarstjórn forseta áðan þannig að þar náum við vonandi að ræða það aðeins hvernig við ætlum að haga málum hér í dag.

Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur borið okkur stjórnarandstæðingum á brýn að við höfum engar leiðir og engar lausnir í þessu máli og engar hugmyndir um hvað eigi að gera. Hv. þm. Birgitta Jónsdóttir hefur haldið til haga allt frá því á sumarþingi þessari hugmynd sinni um að skipa fimm manna þingmannanefnd til að senda út í heim til að ræða við ráðamenn erlendra þjóða um stöðu málsins og helstu sjónarmið og röksemdir okkar Íslendinga fyrir því að eigum ekki að greiða þessar skuldbindingar.

Mig langar því að beina þeirri spurningu til hv. þingmanns hvaða viðbrögð hún hafi fengið hjá stjórnarflokkunum. Ég veit að hv. þingmaður situr stundum fundi með forsvarsmönnum ríkisstjórnarflokkanna og þessi hugmynd hefur væntanlega verið viðruð enda hefur hún margítrekað verið til umfjöllunar í þessum stól af hálfu hv. þingmanns. Fjölmargir hv. þingmenn hafa tekið undir þessa hugmynd þannig að það er ágætt að heyra það af því að okkur stjórnarandstæðingum hefur verið borið á brýn að hafa engar hugmyndir og engar lausnir. Þegar hér kemur fram hv. þm. Birgitta Jónsdóttir með hugmynd sem hún hefur haldið á lofti frá því í sumar er ágætt fyrir okkur á þinginu að vita hvaða viðbrögð hún fær og það er bara augljóst að við þurfum að fylgjast vel með því og vita hvort þetta mál sé einhvers staðar í farvegi.