138. löggjafarþing — 37. fundur,  3. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[12:36]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er áhugaverður vinkill. Ég hef einmitt gagnrýnt það að enn séu ráðherrar í núverandi ríkisstjórn sem voru ráðherrar í hrunstjórninni. Ég hefði kosið og ég veit það — ég hef heyrt það víða að erlendis frá hjá mönnum í góðum stöðum sem hafa einmitt rætt um að þetta skaði vissulega trúverðugleika þjóðarinnar — að það hefði verið heillavænlegast að hafa eingöngu ráðherra sem hefðu ekki komið nálægt hrunstjórninni. Það virðist gleymast svolítið hjá núverandi stjórnarliðum að annar flokkurinn var við stjórn þegar allt hrundi hér og er kannski ágætt að þau minni sig á það af og til, muni það og ábyrgð þeirra.

Ég vil jafnframt taka fram, ég náði ekki að svara því alveg til hlítar, að á þeim formannafundum sem ég hef setið varðandi það að setja saman þingmannanefnd, þá hefur því verið tekið fálega og í raun og veru ekkert gert til að tryggja þeirri hugmynd farveg.

Ég ítreka það enn og aftur að það er gríðarlega mikilvægt að við ræðum við Breta og Hollendinga einni röddu og jafnframt að við sýnum málstað þeirra og þeirra hlið ákveðið umburðarlyndi. Ég vil ekki fara í það að vera í einhvers konar stríði við þessar þjóðir, þó svo að hegðun ríkisstjórna þeirra sé með öllu óforskömmuð og ólíðandi hvernig komið hefur verið fram við okkur og maður nánast gleymir hryðjuverkalögunum af því að svo margt hefur gengið á hérna undanfarið ár.