138. löggjafarþing — 38. fundur,  4. des. 2009.

störf þingsins.

[10:59]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Frú forseti. Ástæða þess að ég kem upp undir þessum lið er að fjalla aðeins um störf þingsins á nýliðnum dögum.

Ég hef undanfarna mánuði borið mikla virðingu fyrir málefnalegu starfi stjórnarandstöðunnar í fjárlaganefnd og í þinginu og það er mjög mikilvægt að stjórnarandstaðan komi með málefnalegt innlegg í umræðuna, veiti ríkjandi stjórnvöldum mikilvægt og nauðsynlegt aðhald og bæti einhverju við. Á síðustu dögum hef ég hins vegar tekið eftir því að menn eru farnir að endurtaka sig í sífellu sólarhring eftir sólarhring. (Gripið fram í.) Ég hef fylgst mjög með þessari umræðu, sennilega meira en margur hver sem hér situr inni (Gripið fram í.) og hef ekki tekið eftir neinu nýju. Síðast í gær um miðja nótt var það nýjasta að handritin væru komin heim og Andvari væri kominn út. Þetta gengur ekki mikið lengur. Ég spyr þessa 27 nýju þingmenn sem hér eru innan dyra, margir hverjir reyndar ekki: Ætla þeir að falla í sama farið og þingið hefur gert á undanförnum áratugum? (Gripið fram í.) Ætla þeir að falla, hv. þm. „Handritin heim“, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, í sama far og þingið á síðustu áratugum og komast ekkert áfram? Á þjóðin ekki betra skilið? Og hvað t.d. með Borgarahreyfinguna sem þóttist hafa kveikt hérna elda? Reyndar er enginn á þeirra vegum hér í dag. Ætlar Borgarahreyfingin virkilega að falla í sama farið og aðrir gamlir valdaflokkar í þessum efnum eða ætlum við að reyna að byrja upp á nýtt? Ég ber virðingu fyrir mönnum sem benda á nauðsyn þess, eins og hv. þm. Guðmundur Steingrímsson úr Framsóknarflokknum, enda kemur hann úr réttri átt í pólitík. (Gripið fram í.)