138. löggjafarþing — 38. fundur,  4. des. 2009.

ályktun Samfylkingarinnar í Garðabæ -- fjárlagagerð -- skattamál o.fl.

[11:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Nú er sá tími liðinn sem ætlaður er fyrir störf þingsins en forseti hyggst koma að einum þingmanni í viðbót þannig að 15 þingmenn komist að undir þessum lið, þrátt fyrir að menn hafi farið fram úr ræðutímanum, í trausti þess að menn virði tímamörk undir þessum lið í framtíðinni. Þá tekur til máls hv. 3. þm. Reykv. n., Illugi Gunnarsson, síðastur undir þessum lið.