ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr hvort ég telji málið fullreynt í fjárlaganefnd. Ég tel svo ekki vera. Í fjárlaganefnd og reyndar í efnahags- og skattanefnd líka var málið aldrei rætt efnislega. Menn tóku málið inn í fjárlaganefnd eftir 1. umr. eins og eðlilegt er að gera. Send var beiðni til efnahags- og skattanefndar um að gera úttekt á efnahagslegum áhrifum af breytingunum á fyrirvörunum frá því í ágúst. Það var svo merkilegt að það komu fjögur minnihlutaálit úr efnahags- og skattanefnd sem voru aldrei rædd efnislega í fjárlaganefnd sem hefði verið eðlilegt. Þegar fjárlaganefnd óskar eftir umsögn efnahags- og skattanefndar eru það mjög eðlileg vinnubrögð að menn ræði álitið. Það er einmitt það sem við erum að gera hér í dag í sölum Alþingis.
Ég benti sérstaklega á það í fjárlaganefnd, þegar meiri hlutinn ákvað að taka málið út í óþökk, án þess að nota eina mínútu í að ræða efnislega um þau atriði sem nefndin hafði kallað eftir, að þá væru þeir stjórnarþingmenn sem sitja í fjárlaganefnd að færa allar þessar umræður inn í þingsalinn vegna þess að það verður að ræða þessi efnahagslegu álit til dæmis og líka lögfræðilegu óvissuna. Þannig að það gaf alveg augaleið að menn voru að færa umræðurnar hingað sem menn kvarta síðan yfir.
Það sem mér finnst þó alvarlegast í þessu er það, virðulegi forseti, að hv. þingmenn, stjórnarliðar og hæstv. ráðherrar skuli ekki taka þátt í efnislegum umræðum. Það hefur margoft komið fram hjá hv. þingmönnum, sumum hverjum, að þeir virðast ekki skilja málið til fulls, eða hafa mismunandi skoðun á því. Það er því mjög mikilvægt að þeir komi í þennan stól og komi þeim skilaboðum á framfæri til þess að geta þá fært rök fyrir því hvers vegna þeir styðja málið.