138. löggjafarþing — 38. fundur,  4. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:34]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni fyrir fyrirspurnina og vangavelturnar. Ég get tekið undir að það hefur verið afar sérkennilegt að horfa upp á það að sá leyndarhjúpur, sem ég vil kalla að hafi svifið um þetta mál eiginlega frá upphafi, tengist því líka hér upp á síðkastið með hvaða hætti menn ætla að leysa málið. Það er stöðugt talað um hótanir héðan og hótanir þaðan en mér hefur fundist upp á síðkastið að þetta séu kannski mest hótanir til heimabrúks, svo notað sé orðfæri hæstv. fjármálaráðherra. Að minnsta kosti hafa allir erlendir aðilar sem hafa átt að tengjast málinu fallið frá þeim hugmyndum að þeir hafi staðið fyrir einhverjum hótunum.

Það er líka sérkennilegt að velta fyrir sér, og ég tek undir það með hv. þingmanni, hvort ríkisstjórnin treysti sér ekki til að fara með þetta mál. Þá má velta því fyrir sér sem við vorum að ræða áðan hvort verkstjórnin í málinu sé nægilega öflug. Hún er það alveg klárlega ekki. Ef hún væri það værum við ekki búin að vera alla þessa daga að ræða þetta mál hér efnislega í þinginu, þá hefði sú umræða auðvitað farið fram einhvers staðar annars staðar og málið komið miklu betur og fullgerðara inn í þingið. Niðurstaða í þessu máli virðist þó geta orðið á tvennan hátt, annaðhvort verði farið að tillögu stjórnarandstöðuflokkanna og málið tekið út og það gaumgæft betur eða það verði keyrt hér áfram í gegn og hugsanlega hafi meiri hlutinn með yfirlýsingum hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra rétt fyrir sér, það verði bara keyrt í gegn óbreytt án þess að skoða nokkra þá þætti sem margir hafa komið upp og hafa verið ræddir á síðustu dögum.

Það er sérkennilegt til þess að hugsa að á sama tíma hafa yfir 25.000 manns skrifað á undirskriftalista Indefence (Forseti hringir.) þar sem skorað er á forsetann að staðfesta ekki þau lög ef þau skyldu fara hérna í gegn, sem ég vona reyndar að verði ekki.