ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni, þetta atriði ætti að nægja til þess. Og þetta er bara eitt af fjölmörgum atriðum sem ættu að nægja til að sannfæra ríkisstjórnina um þennan grundvallarþátt málsins. Það er raunar algjörlega fráleitt að þau skuli leyfa sér að halda því fram enn þá sum, eða gefa a.m.k. í skyn, að frá þessu sé hægt að sleppa síðar á einhvern óskilgreindan hátt.
Mig minnir að það sem hv. þingmaður las hér upp sé úr bréfi sem forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown, sendi hæstv. forsætisráðherra Íslands. Það var heldur snubbótt, nokkrar línur, ég held að hv. þingmaður hafi nánast lesið allt bréfið, og kom til forsætisráðherra tæpum þremur mánuðum eftir að hún hafði sent erindi til Gordons Browns og þó ekki fyrr en farið var að fjalla um það í íslenskum fjölmiðlum að breski forsætisráðherrann hefði ekki svarað. Þá sendir hann þetta snubbótta svar og segir: „Gott, þú ert að standa þig vel, þú ert að tryggja það að samningarnir verði skotheldir og þið hafið enga undankomuleið.“ (Forseti hringir.) Eins konar klapp á kollinn fyrir íslenska forsætisráðherrann, hæstvirtan.