ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Hann kom inn á það í ræðu sinni að þegar búið hefði verið að samþykkja lögin frá Alþingi hér í lok ágúst hefði ríkisstjórnin aldrei haft neina trú á því að hún gæti komið þessum skilaboðum til skila til breskra og hollenskra stjórnvalda.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því við erum að ræða hér bréfaskriftir milli Gordons Browns og hæstv. forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, hvort hann telji að hægt sé að leysa svona milliríkjadeilu án þess að forsætisráðherrar Bretlands og Hollands og Íslands hittist með formlegum hætti og ræði málið. Telur hv. þingmaður það ásættanleg vinnubrögð hjá ríkisstjórninni að reyna að leysa þessa erfiðustu milliríkjadeilu okkar í mjög langan tíma með því að skrifa bréf og óska eftir fundi ef þurfa þykir? Hver er skoðun hv. þingmanns á þeim vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar að gera þetta í staðinn fyrir að krefjast þess að hitta menn og ræða um og fylgja eftir lögum frá Alþingi Íslendinga?