138. löggjafarþing — 39. fundur,  5. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[10:29]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að óhætt sé að segja að ekki hafi vantað upp á pirringinn hjá stjórnarliðinu yfir því að þurfa yfir höfuð að vera að ræða þetta mál. Það má segja að stjórnin hafi verið orðin haldin býsna mikilli lýðræðisþreytu sem hefur birst aftur og aftur nú síðustu daga. Er nú heldur dapurlegt að flokkar sem hvað mest hafa talað fyrir því að breyta ætti vinnubrögðum, að menn ættu að hafa rétt á því að tjá sig, og ná fram breytingum í þinginu — sjálfstæði þingsins, það var oft nefnt af þessum flokkum. Þessir sömu flokkar stóðu líka vörð um þingsköpin hvað varðaði rétt þingmanna til þess að tjá sig að vild, en snúast nú öndverðir í því máli eins og svo mörgu öðru og lýðræðisþreytan varð allsráðandi. Meira að segja gekk hún svo langt, því miður frú forseti, að því var hótað að þetta mál yrði tekið úr umræðu án þess að það væri fullrætt. Því miður tel ég að veruleg hætta hafi verið á því að það yrði gert.