138. löggjafarþing — 39. fundur,  5. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[10:35]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Frú forseti. Já, það var skemmtilegt að lesa blöðin í morgun með morgunkaffinu, eða þannig. Hér hefur verið rætt um ummæli hæstv. fjármálaráðherra sem hann lét hafa eftir sér í blöðunum í morgun, bæði í Morgunblaðinu og í Fréttablaðinu. Ég verð að segja að þarna talar rökþrota, ráðalaus og þreyttur stjórnmálamaður, sem vogar sér að tala svona um stjórnarandstöðuna sem er að gæta hagsmuna íslensku þjóðarinnar í þessu stóra og mikla máli. Þetta er rökþrota og ráðalaus stjórnmálamaður. Með sömu rökum snúum við málflutningnum. Hann segir, með leyfi forseta, í Fréttablaðinu:

„Auðvitað eru þarna ungir og reynslulitlir menn í forustu og verða að hafa tíma til að sanna sig, en þeir mega þá ekki færast of mikið í fang.“

Þvílíkur hroki, frú forseti. Þetta er ótrúlegur hroki sem þarna kemur fram af hálfu hæstv. fjármálaráðherra, sem væntanlega um svipað leyti var, eins og hann segir hérna sjálfur, að gera tilraun til að koma vitinu fyrir þessa sömu stjórnmálamenn. Þetta er mikil viðleitni í þá átt.

Með sömu rökum snúum við málflutningnum. Ég leyfi mér að spyrja: Er ekki betra að hafa unga, óþreytta stjórnmálamenn í forustu fyrir þjóðina á svona ögurstundu, heldur en þá væntanlega gamla og hokna af reynslu en algjörlega uppgefna á verkefninu? Hvort er nú betra á slíkri ögurstundu að vera með? Ég veit ekki um neitt einasta fótboltalið sem skiptir inn gömlu, þreyttu leikmönnunum þegar mest þarf á því að halda að hafa unga og óþreytta, fríska og spræka leikmenn. Og hvar er nýja Ísland? Hvar er nýja Ísland sem þetta fólk boðaði? Það er gamalt og þreytt í þeirra augum, gamalt og þreytt.

Og Jóhanna Sigurðardóttir, hæstv. forsætisráðherra, hefur lengi verið í pólitík, það deilir enginn á þá fullyrðingu. En Jóhanna Sigurðardóttir, hæstv. forsætisráðherra, hefur ekki verið lengi formaður flokks. Jóhanna Sigurðardóttir, hæstv. forsætisráðherra, hefur jafnvel minni og styttri formannsreynslu en t.d. hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Ég veit ekki betur en Jóhanna Sigurðardóttir hafi verið kjörinn formaður Samfylkingarinnar einhvern tímann í hvað, mars? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var kjörinn í janúar. Ég mundi segja að þar væri meiri reynsla. Jú, Jóhanna Sigurðardóttir, hæstv. forsætisráðherra, hefur verið lengi í pólitík. Hún hefur stundað andófspólitík, grímulausa andófspólitík, hvort sem hún hefur verið innan eða utan ríkisstjórnar, öll þau ár sem hún hefur verið í pólitík og hún hefur aldrei miðlað málum um eitt eða neitt. Aldrei. Ég leyfi mér að fullyrða það.

Þegar hæstv. fjármálaráðherra segir: „Við höfum gert þrjár meiri háttar tilraunir til að koma vitinu fyrir þau, en þær hafa ekki borið árangur enn þá“ þá skal ég upplýsa þingheim og þjóð hvað hefur falist í þeim tilraunum. Tilraunin er sú að spyrja: Og hvenær ætlið þið að hætta að tala í þessu máli? Það er tilboðið.

Og eins og hæstv. fjármálaráðherra segir hafa þeir boðist til að lengja umræðuna og bæta við dögum, en alltaf hefur verið spurt: Hvenær ætlið þið að leggja ykkar vopn niður? Í mínum huga eru það engir samningar, það eru engin samningstilboð. Það eru bara alls engin samningstilboð, enda ekki von á neinu frá hæstv. forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur sem hefur skellt hurðum í þrjátíu ár.

Hvað með nýja Ísland? Átti ekki að breyta vinnubrögðunum? Það átti að vera samstaða meðal stjórnar og stjórnarandstöðu. Sér er nú hver samstaðan.

Nei, frú forseti, þetta er ótrúlega lágkúrulegur málflutningur af hálfu hæstv. fjármálaráðherra og hann gerir ekkert með þessu annað en að ergja okkur hér. Og ég verð að segja að það samkomulag sem náðist milli stjórnar og stjórnarandstöðu í gær var ágætt vegna þess að ég mundi segja að allir hefðu grætt á því. Stjórnin fékk þessa töfradagsetningu sem hún var að leita eftir, hvenær við mundum fallast á að hleypa málinu út úr 2. umr. Og hvað fékk stjórnarandstaðan í staðinn? Stjórnarandstaðan sem er ekki að þessu til að halda uppi grímulausu málþófi eins og þetta fólk heldur fram, stjórnarandstaðan er að þessu til að tryggja það að málið fái efnislega meðferð. Það sem vakir mest fyrir okkur er að málið fari inn í nefnd og fái efnislega meðferð. Þannig tryggðum við með 16 atriða lista að ekki yrði farið með þetta mál í einhverri sýndarmennsku inn í fjárlaganefnd þannig að hv. þm. Guðbjartur Hannesson gæti sagt að hann væri örmagna eftir að hafa hlustað á alla þessa sérfræðinga. Nei, við erum að tryggja það að hv. þm. Guðbjartur Hannesson þurfi nú að taka almennilega á þessu máli til þess að það væri einhver leið til að bjarga því sem bjargað verður. Ég mundi því segja að þetta væri gott samkomulag en þetta eru viðbrögðin: Menn eru ungir og reynslulitlir og verða að fá að spreyta sig. Hvers lags bull, þetta er manninum til minnkunar.

Hv. þm. Ögmundur Jónasson er allt í einu með miklar yfirlýsingar núna í blöðum, þrátt fyrir að hann hafi talað í fjórar mínútur samtals á þessu haustþingi samkvæmt blöðunum í dag. Í gær var umfjöllun á vefsíðunni amx.is. Þar er verið að fara yfir ritdóm sem hv. þm. Ögmundur Jónasson skrifaði í tímaritið Þjóðmál. Þar segir Ögmundur Jónasson, með leyfi forseta:

„Engin alvöru tilraun hefur verið gerð til að notfæra þá velvild sem er til staðar gagnvart Íslandi við lausn á Icesave-deilunni.“

Ögmundur Jónasson segir í lokin, með leyfi forseta:

„Þegar málið hafi borið á góma í pólitískum samskiptum hafi verið hvíslast á um það í bakherbergjum, en með slíkum vinnubrögðum sé málstaður Íslands dauðadæmdur.“ — Að mati Ögmundar.

Og Ögmundur heldur áfram:

„Völdin og ofbeldið sem Íslendingar hafa verið beittir hefðu aldrei þolað dagsljósið. Þetta er mergurinn málsins sem íslensk stjórnvöld hafa ekki skilið. Það gera hins vegar andstæðingar okkar enda eru það þeir sem krefjast leyndar. Og við hlýðum! Ég leyfi mér að fullyrða að almenningur á Norðurlöndum hefði aldrei liðið ríkisstjórnum sínum að koma fram gagnvart Íslandi eins og þær hafa gert — sem handbendi lánardrottna okkar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins — ef framkomu þeirra hefði verið gerð skil í fjölmiðlum.“

Ég segi við hv. þm. Ögmund Jónasson, sem ég trúi ekki öðru en að sé að segja þetta vegna þess að hann viti eitthvað, hv. þm. Ögmundur Jónasson, hér með skora ég á þig að upplýsa það sem þú veist. Og ég skora á fjölmiðla þessa lands að vakna og ganga eftir því við hv. þm. Ögmund Jónasson hvað hann veit. Hvaða hótanir eru þetta sem hann veit um? Komdu með okkur í lið, hv. þm. Ögmundur Jónasson, og upplýsum þetta.

Frú forseti. Ég á eftir tvær mínútur og eins og áður er alveg með ólíkindum hve tíminn líður hér hratt. Ég á nefnilega alveg eftir að ræða ummæli hins ópólitíska fræðimanns úr fílabeinsturninum, hins ópólitíska hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra Gylfa Magnússonar. Hann fer í fjarveru hæstv. fjármálaráðherra á fund norrænna fjármálaráðherra og kemur heldur betur brattur í fjölmiðla og segir að það sé nú ekki vandamál með þetta Icesave-mál, þetta geti ekki haldið áfram endalaust, málinu hljóti að ljúka einhvern tímann. Það væri betra ef við gætum fengið stjórnarandstöðuna með okkur í lið en það er ekki nauðsynlegt, segir þessi mikli lýðræðissinni sem enginn hefur kosið. Það hefur enginn kosið þennan mann til að fara með hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Og hann stendur ekki og fellur og þarf ekki að vera ábyrgur gagnvart einum eða neinum kjósanda. Þessi mikli lýðræðissinni segir: Ríkisstjórnin fær frumvarpið samþykkt — og það sem meira er, óbreytt. Hann heldur því fram fullum fetum. Og hvar er þetta nú komið? Þetta er komið á New York Times. Og ég er eiginlega næstum því viss um að það eru einhverjir breskir viðsemjendur okkar og það eru einhverjir hollenskir viðsemjendur okkar sem geta nú andað rólega vegna þess að það er hæstv. ráðherra í ríkisstjórn Íslands sem talar með þessum ömurlega óábyrga hætti.

Þetta er ekki boðlegt, frú forseti. Við erum hér á sama tíma og ég vænti þess að hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra hafi verið upplýstur um að það séu þreifingar á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að gera einhvers konar samkomulag sem í mundu felast skyldur af hálfu ríkisstjórnarinnar til að setja málið í ákveðinn farveg. Maður hefði ætlað að þessi ráðherra, sem enginn hefur kosið, hefði verið upplýstur um það. Nei, hann fer mjög „tapper“ eins og móðir mín hefði notað, „tapper“ er orðið, og segir: Þetta mál fer í gegn óbreytt. Ég vil segja við hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra: Nei, ég skal tryggja það að þetta mál fer ekki í gegn óbreytt. Og ég skal láta þann ráðherra vita (Forseti hringir.) það að svona talar maður ekki, (Forseti hringir.) sérstaklega ekki þegar enginn hefur kosið mann.