ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni grein í Morgunblaðinu í dag þar sem enn einn lögmaðurinn varar við því að um sé að ræða stjórnarskrárbrot í því lagafrumvarpi sem nú liggur fyrir. Það er mjög athyglisvert að hann skuli benda á þetta því að þetta er einn þátturinn enn sem hægt er að benda á þar sem a.m.k. ríkir vafi um stjórnarskrána sem við höfum öll unnið eið að.
Í þeim 16 atriðum sem samþykkt voru í gær fyrir tilstilli hæstv. forseta — og ber að þakka henni það — að skoðuð yrðu ofan í kjölinn er m.a. það að lögfræðilegt álit verði veitt varðandi það hvort frumvarpið standist ákvæði stjórnarskrár. Það ætti að svara, a.m.k. að hluta til, þeim spurningum sem við þingmenn höfum haft uppi varðandi þennan hluta.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hún er löglærð ef ég veit rétt, hvort það sé hennar mat að þessi ákvæði sem hafa verið dregin í efa, m.a. af Þorsteini Einarssyni í dag, Sigurði Líndal, Stefáni Má Stefánssyni og Lárusi L. Blöndal, svo einhverjir séu nefndir, og einnig af Ragnari H. Hall — þetta er að verða býsna föngulegur hópur lögmanna. Telur hún samkvæmt sínu eigin áliti og eigin reynslu að það þurfi að skoða (Forseti hringir.) nákvæmar þennan hluta málsins?