ráðstafanir í skattamálum.
Virðulegi forseti. Ég er algerlega sammála hæstv. fjármálaráðherra að það þarf að taka bæði á tekjuhlutanum og á útgjaldahlutanum, skera niður og auka tekjur. Við erum ósammála um hvernig á að auka tekjurnar. Við sjálfstæðismenn höfum bent á leið til þess, eins og ég mun fara betur yfir í ræðu minni á eftir, en hvað varðar breytingar á skattkerfinu er þetta enn ein blekkingin sem er verið að reyna að halda fram.
Við fall bankanna voru 170 milljarðar í sjóðum inni í Seðlabankanum sem hafði verið aflað með skattheimtu. Það var búið að borga niður stórkostlega, um tugi næstum því 100 milljarða, lífeyrisskuldbindingar í lífeyrissjóði ríkisins. Það var búið að borga niður erlendar skuldir stórkostlega. Af hverju? Hvernig getur hæstv. fjármálaráðherra boðið okkur upp á það að ekki hafi verið búið að safna í kornhlöðurnar fyrir þetta fall?