ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég starfaði áður en ég varð þingmaður einmitt sem atvinnuráðgjafi og þar áður kom ég töluvert að fyrirtækjarekstri. Ég held að þetta sé svipuð hegðun sem við sjáum hérna og maður upplifði hjá fólki sem var í miklum rekstrarerfiðleikum með fyrirtæki sín. Þá var það stundum þannig að fólk vissi raunar ekki hvernig í ósköpunum það ætti að geta komist í gegnum þá, það hafði ekkert yfirlit lengur yfir skuldir sínar og svo mætti það á fund á nýjum jeppa og virtist einhvern veginn telja að það gæti bætt við sig endalaust eða að það skipti engu máli vegna þess að skuldirnar væru þegar orðnar svo miklar að það væri alveg hægt að bæta við einni milljón þarna eða tveimur milljónum annars staðar.
Það sem líka einkennir fólk sem á í miklum rekstrarörðugleikum er að yfirsýnin yfir skuldirnar er nákvæmlega engin, það veit ekki hvað það skuldar. Þetta er nokkuð sem ég held að sé mjög auðvelt að yfirfæra á Ísland í heildina, að það skuli hafa tekið virta alþjóðlega stofnun eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þetta langan tíma að ná að einhverju leyti utan um það hver staðan er á Íslandi sýnir náttúrlega hvers konar vitleysu við vorum komin út í fyrir hrunið. Þegar menn tala um þessa vafninga, sem hlýtur að vera eina orðið sem hægt er að nota um það, þar sem verið var að stofna dótturfélög og „offshore“-félög og ég veit ekki hvað, sýnir það að einstaklingarnir sem stóðu í þessu höfðu væntanlega ekki hugmynd um hvað þeir voru að gera, ríkið hafði ekki hugmynd um það, Seðlabankinn hafði ekki hugmynd um það, Fjármálaeftirlitið hafði ekki hugmynd um það. Ég er ekkert hissa á því að við fáum athugasemdir frá fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins núna og þegar hann er spurður um hvað hann mundi gera ef hann væri Íslendingur, þá segir hann að hann mundi flytja í burtu. (Forseti hringir.) Þetta er náttúrlega alveg ótrúleg staða og það hlýtur að vera ótrúlega pirrandi fyrir fólk sem vill vinna faglega að hlutunum að þurfa að vaða í gegnum svona.