ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Já, það er vissulega eitt af áhyggjuefnunum að tíminn og kraftarnir hafi einmitt farið í Evrópusambandsumsóknina en þá vekur það líka aðra spurningu, hvort undirlægjuháttinn — ætli það sé ekki óhætt að kalla þetta undirlægjuhátt? Hefur ekki allt sem við höfum rætt nánast staðfest að það sé rétta orðið? — í þessu máli megi að einhverju leyti rekja til sömu ástæðu?
Einnig vil ég heyra mat hv. þingmanns á því hvort segja megi að ekki hafi aðeins skort mikið upp á það að íslensk stjórnvöld hafi varið hagsmuni Íslands heldur megi fullyrða að þau hafi þvert á móti varið hagsmuni Breta og Hollendinga á tíðum. Bara til að nefna eitt dæmi þá vísa ég til þess að á sama tíma og fulltrúar fjármálaráðherra voru að reyna að semja aftur um þessa samninga í Bretlandi og Hollandi (Forseti hringir.) birti hæstv. forsætisráðherra skýrslur þar sem málstaður Íslendinga var troðinn í svaðið.