svör við fyrirspurnum og fyrirkomulag umræðna.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé óhjákvæmilegt að fundinum verði frestað á meðan fundur stendur yfir milli þingflokksformanna. Í ljós hefur komið að það samkomulag sem gert var um helgina virðist vera komið í mikið uppnám vegna þess að skilningur manna á því samkomulagi virðist vera mjög misvísandi. Meðan svo er er kominn upp verulegur ágreiningur um framhald Icesave-málsins og ekki er skynsamlegt að halda fundi áfram meðan við vitum ekki hvar málið er statt.
Ég vil hvetja hæstv. forseta til að fresta fundi í nokkrar mínútur meðan þessi fundur er að klárast svo að við getum gert okkur grein fyrir því hver staða þessa máls er áður en við hefjum aftur efnislega umræðu.